Listafólk, félagasamtök og aðrir lögaðilar sem sinna menningarstarfi fyrir börn og ungmenni í samræmi við opinbera menningarstefnu. Til barnamenningar teljast verkefni á sviði lista og menningar sem unnin eru með virkri þátttöku barna og/eða fyrir börn.
Barnamenningarsjóður Íslands naut framlaga af fjárlögum árin, 2019–2023, 100 millj. kr. á ári. Um opinbert átaksverkefni var að ræða, sem ætlað var að skjóta styrkari stoðum undir fjölbreytt menningarstarf í þágu barna og ungmenna til framtíðar. Með þingsályktun um aðgerðaáætlun um eflingu barnamenningar fyrir árin 2024-2028 var Barnamenningarsjóður Íslands festur í sessi.
Umsóknarfrestur er 4. apríl 2025 kl. 15:00. Opnað verður fyrir umsóknir í byrjun febrúar.
Hlutverk Barnamenningarsjóðs er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi. Í starfi sjóðsins er m.a. horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga, ásamt því markmiði að jafna aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.
Listafólk, félagasamtök og aðrir lögaðilar er sinna barnamenningu á einhvern hátt.
Fjölbreytt verkefni og starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna. Verkefni sem auk þess stuðla að lýðræðislegri virkni barna í samfélaginu eða taka að öðru leyti mið af inntaki Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hafa sérstakt vægi. Einnig er horft til verkefna sem efnt er til í samstarfi ólíkra aðila.
Umsóknum skal skilað inn í gegnum rafrænt umsjónarkerfi Rannís (sjá grænan borða ofar á síðunni á meðan opið er fyrir umsóknir; sjá leiðbeiningar um kerfið hér). Aðeins er tekið við umsóknum og fylgiskjölum gegnum umsjónarkerfið. Þegar verkefni lýkur ber umsækjanda að skila inn greinagerð , eða áfangaskýrslu þar sem það á við, um hvernig til tókst, hvað gekk vel og hvað má betur fara.
Hlutverk Rannís er að hafa umsýslu með Barnamenningarsjóði fyrir hönd stjórnvalda.