Kynningarmyndbönd

Kynningarmyndband um Skattfrádrátt rannsókna- og þróunarverkefna

Í þessu myndbandi er á einfaldan hátt fjallað um þessa mikilvægu stuðningsaðgerð, sem hefur á undanförnum árum vaxið að mikilvægi, fyrir fyrirtæki sem byggja starfsemi sína á nýsköpun. Á sama tíma hafa þau verkefni sem notið hafa stuðnings skilað ríkissjóði miklum skatttekjum vegna aukinna umsvifa og sölu afurða sem þróaðar hafa verið. Þegar horft er á greiðslustöðu ríkissjóðs gegnum skattspor þessara verkefna kemur í ljós að ríkissjóður er oft í jákvæðu greiðsluflæði vegna þessara verkefna strax frá fyrsta degi. Í þeim tilfellum sem styrkir Tækniþróunarsjóðs eru greiddir út fyrirfram, fær ríkissjóður þá fjárhæð oftast til baka á stuttum tíma í formi staðgreiðsluskatta og tryggingagjalds af þeim vinnulaunum sem greidd eru, jafnvel áður en fyrsta sala á afurðum kemur til.

Kynningarmyndband

Árangurssaga Kerecis

Íslenska fyrirtækið Kerecis var stofnað árið 2007 og hefur þróað lækningavörur úr þorskroði til að meðhöndla skurðsár, brunasár og önnur sár hjá sjúklingum víðs vegar um heiminn. Kerecis er fyrsta íslenska fyrirtækið til að fá nafnbótina Einhyrningur (e. Unicorn) í kjölfar þess að árið 2023 var fyrirtækið selt fyrir meira en einn milljarð bandaríkjadala. Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna gengdi veigamiklu hlutverki við að styðja við vöxt Kerecis og uppbyggingu þekkingar í lækningavörugeiranum í íslensku samfélagi.

Árangurssaga

Árangurssaga Solid Clouds

Fyrirtækið Solid Clouds er íslenskt tölvuleikjafyrirtæki sem stofnað var árið 2013. Í myndbandinu kemur fram að sá stuðningur sem fyrirtækið fékk í gegnum Skattfrádrátt rannsókna- og þróunarverkefna og Tækniþróunarsjóð skipti sköpum við að ná þeim árangri sem fyrirtækið hefur náð í dag.

Árangurssaga

Árangurssaga Controlant.

Í þessu myndbandi er greint frá því hvernig fyrirtækið Controlant hefur byggst upp með þróun á mælitækni og vöktunarkerfi til að fylgjast með flutningaferli vöru sem þarfnast sérstakrar vöktunar, s.s. matvæli, lyf og bóluefni. Í myndbandinu kemur fram að sá stuðningur sem fyrirtækið fékk í gegnum Skattfrádrátt rannsókna- og þróunarverkefna og Tækniþróunarsjóð skipti sköpum við að ná þeim árangri sem fyrirtækið hefur náð í dag. Fyrirtækið hefur á þessum tíma fengið samtals 600 m.kr. í stuðning, en skilað ríkissjóði 2.000 m.kr. til baka í skatta á sama tíma. Ef endurgreiðsluhlutfall ríkissjóðs væri reiknað frá þeim tíma sem greiðslustaðan stóð lægst er fyrirtækið búið að greiða þá fjárhæð margfalda til baka. 

Árangurssaga

Árangurssaga SagaNatura

Í þessari myndbandi er greint frá því hvernig fyrirtækið SagaNatura hefur nýtt Skattfrádrátt rannsókna- og þróunarverkefna við uppbyggingu líftæknifyrirtækis sem hefur sérhæft sig í þróun og framleiðslu fæðubótarefna m.a. úr ætihvönn og astaxanthin. Í myndbandinu kemur fram að sá stuðningur sem fyrirtækið hefur fengið í gegnum Skattfrádrátt rannsókna- og þróunarverkefna og Tækniþróunarsjóðs hefur skipt sköpum við uppbyggingu fyrirtækisins.

Árangurssaga

Árangurssaga MainManager

Í þessu myndbandi er greint frá því hvernig fyrirtækið MainManager hefur nýtt Skattfrádrátt rannsókna- og þróunarverkefna við uppbyggingu hugbúnaðarfyrirtæki sem hefur sérhæft sig stjórnunarkerfum til að aðstöðustjórnunar.  Fyrirtækið hefur vaxið hratt á undanförum árum og er með samninga um umsjón fasteigna við stóra aðila á norðurlöndum og víðar. Í myndbandinu kemur fram að sá stuðningur sem fyrirtækið hefur fengið í gegnum Skattfrádrátt rannsókna- og þróunarverkefna og Tækniþróunarsjóð hefur skipt sköpum við uppbyggingu fyrirtækisins, en ríkissjóður hefur fengið þann stuðning greiddan 50-falt til baka í formi skatta á þessum uppbyggingartíma.

Árangurssaga








Þetta vefsvæði byggir á Eplica