Rannsóknaþing 2014
Rannsóknaþing 2014 og afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs fór fram föstudaginn 29. ágúst kl. 8:30-11:00 á Hilton Reykjavík Nordica
Niðurstaða úttektar á íslensku rannsókna- og nýsköpunarumhverfi
Alþjóðlegir ráðgjafar hafa lagt jafningamat á stöðu vísinda, rannsókna og nýsköpunar á Íslandi. Á þinginu voru drög að niðurstöðu úttektarinnar til umfjöllunar og fjölluðu þau Francien Heijs og Arnold Verbeek um skýrsluna og í kjölfarið voru pallborðsumræður með þátttöku fundargesta.
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs voru afhent á þinginu.
Dagskrá:
8:30 Opnunarávarp
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs
8:40 Úttekt á íslensku rannsóknarumhverfi
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra
8:50 Afhending Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs
Fulltrúi dómnefndar gerir grein fyrir valinu
Sigumundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs afhendir Hvatningarverðlaunin 2014
9:20 Kynning á skýrslu jafningjahópsins
Francien Heijs, vísindaráðgjafi sendiráðs Holland fyrir ESB og formaður jafningjahópsins
Arnold Verbeek, sérfræðingur hjá IDEA Brussel og ráðgjafi og ritari jafningjahópsins
Sækja erindi.
10:00 Viðbrögð úr íslensku rannsókna- og nýsköpunarsamfélagi - pallborðsumræður
- Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri
- Erna Magnúsdóttir rannsóknasérfræðingur á heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands
- Unnur Brá Konráðsdóttir formaður allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis
- Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir verkefnastjóri framkvæmdastjórnar Marel um rannsóknir og nýsköpun.
- Árni Snorrason forstjóri Veðurstofu Íslands
Umræðustjóri: Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur
Fundarstjóri: Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís