Nýsköpunarþing 2024 - Markaðsmálin

  • Nyskopunarthing-2024-mynd-med-grein

Rannís, Hugverkastofan, Íslandsstofa og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins bjóða til Nýsköpunarþings 2024 í Grósku 22. október kl. 14:00-15:30.

Á Nýsköpunarþingi 2024 er sjónum beint að sölu- og markaðsmálum íslenskrar nýsköpunar á erlendum mörkuðum.

Hvað þarf til, til að ná árangri á alþjóðlegum mörkuðum? Er rétt fyrir íslensk fyrirtæki að flagga íslenskum uppruna? Leggja íslensk fyrirtæki næga áherslu á sölu- og markaðsmál og uppbyggingu vörumerkja? Til að svara þessum spurningum og fleirum munu aðilar úr íslensku og alþjóðlegu markaðs- og nýsköpunarumhverfi deila reynslu af sölu- og markaðsstarfi á erlendum mörkuðum.

Aðalfyrirlesarar verða Fura Ösp Jóhannesdóttir, ráðgjafi og nýkjörinn stjórnarformaður auglýsingastofunnar Brandenburg og Bolli Thoroddsen, meðstofnandi Trip to Japan. 

Nánari dagskrá verður birt innan skamms.

Í lok þingsins mun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, veita Nýsköpunarverðlaun Íslands 2024.

Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.

Fundarstjóri: Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, forstöðumaður útflutnings og fjárfestinga hjá Íslandsstofu.

Öll velkomin.

Skráning fer fram hér

Facebook viðburður








Þetta vefsvæði byggir á Eplica