Nýsköpunarþing 2019
Nýsköpunarþing Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Nýsköpunarsjóðs var haldið mánudaginn 21. október 2019, á Grand Hótel Reykjavík. Nýsköpunarverðlaun Íslands 2019 voru afhent á þinginu.
Þema þingsins í ár er Sjálfbærni til framtíðar.
Umræðuefni Nýsköpunarþinganna er ávallt valið með það í huga að ýta undir skilning manna á samspili vísinda, tækni og þekkingar annars vegar og vöruframleiðslu og markaðsstarfs hins vegar. Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt á Nýsköpunarþingi.
Dagskrá
Formleg dagskrá hefst kl. 15.00 og lýkur kl. 17.00
- Ávarp
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra
- Viðtöl við frumkvöðla og fólk í nýsköpun:
Skilaboð um framtíðina, Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, aðgerðasinni og nemandi
- Aðalfyrirlesari, erindi
Dr. Leyla Acaroglu, frumkvöðull, hönnuður og stofnandi UnSchool of Disruptive Design, Disrupt Design og CO Project Farm.
- Viðtöl við frumkvöðla og fólk í nýsköpun:
Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, aðstoðarforstjóri Carbon Recycling International
- Upplýsingatækni í þágu umhverfisins
Jón Ágúst Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Klappa
- Sjávarútvegur og nýsköpun
Guðrún Anna Finnbogadóttir, verkefnastjóri Vestfjarðastofu
- Viðtöl við frumkvöðla og fólk í nýsköpun:
Kristinn Jón Ólafsson, verkefnastjóri Snjallborgar hjá Reykjavík
Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, framkvæmdastjóri Markaða Landsbankans og fyrrum stjórnarformaður IcelandSIF, félags um ábyrgar og sjálfbærar fjárfestingar.
- Spennum beltin - ókyrrð framundan
Rakel Garðarsdóttir, frumkvöðull, framkvæmdastjóri og stofnandi Verandi og Vakandi
- Nýsköpunarverðlaun Íslands 2019
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra afhendir verðlaunin
Fundarstjóri: Huld Magnúsdóttir, forstöðumaður Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins.
Í lok Nýsköpunarþings er boðið uppá léttar veitingar.
Nýsköpunarþinginu er streymt hér.