Nýsköpunarþing 2022
Nýsköpunarþing 2022 var þriðjudaginn 20. september í Grósku
Yfirskrift þingsins 2022 er Hugvitið út! – Hvernig verður hugvit stærsta útflutningsgrein Íslands?
Umfjöllunarefni Nýsköpunarþings hverju sinni tengist rannsóknum, þróun og markaðsmálum. Umræðuefnið er ávallt valið með það í huga að ýta undir skilning manna á samspili vísinda, tækni og þekkingar annars vegar og vöruframleiðslu og markaðsstarfs hins vegar. Nýsköpunarverðlaun Íslands eru veitt á Nýsköpunarþingi.
Dagskrá
- Ávarp
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Undirstöður og drifkraftar verðmætasköpunar á grunni hugvits
Dr. Ari Kristinn Jónsson, forstjóri AwareGo - Sjálfbærni og nýsköpun: Verkfæri í sölu- og markaðsstarfi
Klara Sveinsdóttir framkvæmdastjóri gæða- og skráningarmála Kerecis
- Nýsköpun felst í mannauðnum
Elín María Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Mannauðssviðs hjá Controlant
- Loforðin á bak við markmiðið
Jenný Ruth Hrafnsdóttir, meðstofnandi Crowberry Capital
- Nýsköpunarverðlaun Íslands 2021 og 2022
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Fundarstjóri er Ágúst H. Ingþórsson, forstöðumaður Rannís.
Hægt er að fylgjast með þinginu í beinni útsendingu hér að neðan:
Nýsköpunarþing er haldið í samstarfi Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Hugverkastofunnar.
|
|
|