Nýsköpunarþing 2015
Nýsköpunarþing Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Íslandsstofu og Nýsköpunarsjóðs var haldið fimmtudaginn 9. apríl 2015 á Grand hótel Reykjavík. Nýsköpunarverðlaun Íslands 2015 voru afhent á þinginu.
Á þinginu var velt upp spurningum eins og: Hverjar eru helstu áskoranir frumkvöðla á Íslandi? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar íslensks stuðningsumhverfis nýsköpunar? Hver er staða íslenskra frumkvöðla í alþjóðlegu samhengi?
Hægt er að nálgast kynningar fyrirlesara með því að smella á nöfn þeirra í dagskránni.
Dagskrá
Ávarp
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
From Entrepreneur to International Marketing
Jørn Bang Andersen, European Director, Clareo Partners
Íslenskir frumkvöðlar, stuðningsumhverfið og áskoranir
Kristinn D. Grétarsson, forstjóri ORF Líftækni
Sigríður Vigfúsdóttir, markaðsstjóri Primex
Hilmar Gunnarsson, forstjóri Modio
Tónlistaratriði
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2015 afhent
Fundarstjóri: Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís.