VÍSINDAVAKA - stefnumót við vísindamenn
Vísindavaka er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra. Öll fjölskyldan finnur eitthvað við sitt hæfi á Vísindavöku, en hún er haldin samtímis um alla Evrópu á Degi evrópska vísindamannsins, sem er síðasta föstudag í september. RANNÍS stendur fyrir Vísindavöku á Íslandi.
Vísindavaka 2011 verður haldin föstudaginn 23. september í Háskólabíói. Vísindavakan verður sett kl. 17:00 og henni lýkur kl. 22:00.
Í aðdraganda Vísindavöku 2011 verður hellt upp á Vísindakaffi 19., 20., 21. og 22. september. Þar kynna nokkrir fræðimenn viðfangsefni sín fyrir almenningi, og gefst fólki kostur á að spyrja þá spjörunum úr. Vísindakaffikvöldin eru óformleg og skemmtileg skoðanaskipti milli fræðimanna og gesta. Hér er tengill í dagskrá Vísindakaffikvöldanna 19.-22. september 2011.
Nánari upplýsingar um einstaka dagskrárliði Vísindavöku eru í flipunum hér til vinstri, en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu RANNÍS í síma 515 5800 eða í netfangi alla@rannis.is
Fréttir
26.9.2011
Fýluböllurinn eftirminnilegur sveppur
Fréttastofa RÚV mætti á Vísindavöku sl. föstudag og tók tal af Guðríði Gyðu Eyjólfsdóttur, doktor í sveppafræðum. Í frétt á www.ruv.is segir:
Í bás Náttúrufræðistofnunar er sérstök kynning á sveppum. Þar má finna sníkjusveppi, samlífssveppi og rotsveppi. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir er doktor í sveppafræðum. „Við erum með rotnandi gorkúlur sem eru sjálfar rotnandi, rotsveppir. Svo erum við með sýnishorn af líkama svepps þar sem hann vex á viðarsneið.“
23.9.2011
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness hlýtur viðurkenningu fyrir vísindamiðlun
Við setningu Vísindavöku 2011 var Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness veitt viðurkenning fyrir vísindamiðlun.
23.9.2011
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN VÍSINDAMENN!
Vísindavaka 2011 verður haldin í dag föstudaginn 23. september í Háskólabíói kl. 17-22. Rannsóknamiðstöð Íslands, RANNÍS, stendur fyrir Vísindavöku en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu í tengslum við Dag vísindamannsins. Evrópusambandið styrkir verkefnið, en Vísindavaka verður haldin samtímis í fjölmörgum borgum Evrópu. Sjá evrópska heimasíðu verkefnisins.
23.9.2011
Viðtal í Morgunútvarpi Rásar 2 við nemendur HÍ sem hönnuðu verðlaunakappakstursbíl
Vísindavaka 2011 verður sett kl. 17 í dag í Háskólabíói og stendur til kl. 22. Þar er margt í boði fyrir alla fjölskylduna, til að mynda má búast við að margir vilji sjá og fræðast um kappakstursbíl sem nemendur við verkfræðideild Háskóla Íslands hönnuðu og hefur fengið alþjóðleg verðlaun fyrir.
VÍSINDAVAKA 2011
föstud. 23. september kl. 17:00-22:00
Í Háskólabíói
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Jónsdóttir hjá Rannís, sími 515 5800, netfang alla@rannis.is







