Skattívilnun
Opið er fyrir umsóknir vegna skattfrádráttar rannsókna- og þróunarverkefna (R&Þ) fyrir árið 2013 og er umsóknarfresturinn til og með 1. september 2013 fyrir R&Þ-kostnað sem fellur til við verkefni sem unnin eru á því ári. Útskýringar á umsóknarferli og öðru því tengdu eru í lögum nr. 152/2009 og handbók vegna skattívilnunar.
Nánar um ferlið:
Ef verkefni sem samþykkt var sem rannsókna- eða þróunarverkefni á árinu 2012 nær yfir á árið 2013 þarf að sækja aftur um staðfestingu á því sem rannsóknar- eða þróunarverkefnis fyrir árið 2013. Umsóknafrestur fyrir framhaldsumsóknir er til og með 1. apríl 2013.
Umsóknarkerfið skiptist í tvo kafla. Í 1. kafla skal skrá almennar upplýsingar um fyrirtækið í heild sinni. Meðal þess sem skal skrá er raunverulegur kostnaður og tekjur síðastliðinna ára auk áætlunar ársins í ár og áætlana næstu ára. Einnig skal þar tekin afstaða til þess hvort allar þær upplýsingar sem fram koma og skráðar eru í 1. kafla megi birta opinberlega eða ekki. Upplýsingar um fyrri rekstrartölur, sem voru skráðar í umsókn 2012, eru forskráðar en umsækjendur eru þó beðnir um að yfirfara skráninguna. Allar fjárhæðir eru skráðar í þúsundum króna.
Í 2. kafla skal svo skrá upplýsingar um verkefnið sem unnið verður að á árinu 2013. Þær kostnaðartölur sem fram koma í 2. kafla sem og aðkeypt rannsóknar- eða þróunarvinna, samstarf og styrkir skulu eingöngu eiga við það verkefni sem sótt er um skattfrádrátt fyrir. Upplýsingar um aðra opinbera styrki vegna verkefnisins skal einnig skrá. Í 2. kafla skal einnig tekið fram hvort verkefni sé rannsóknar- eða þróunarverkefni. Vísað er til 3. gr. laga nr. 152/2009 um hvað telst til rannsókna og þróunar eða í handbók vegna skattívilnunar.
Nauðsynlegt er að skila eftirfarandi umsóknargögnum með umsóknum:
- Viðskiptaáætlun að hámarki 5 blaðsíður, notast skal við sniðmát Rannís sem má nálgast hér.
- Samstarfssamningi ef um samstarfsverkefni er að ræða.
Umsóknum skal skila rafrænt hér: Rafræn skráning umsóknar
Frekari upplýsingar um skattívilnun sem má nálgast:
Lög númer 152/2009 með áorðnum breytingum má nálgast hér.
Reglugerð í tengslum við breytt lög má nálgast hér.
Handbók vegna skattívilnunar má nálgast hér.
Leiðbeinandi reglur Eftirlitsstofnunar EFTA um ríkisaðstoð til R&Þ&N verkefna má nálgast hér.
Nánari upplýsingar
Sigurður
Björnsson
sviðsstjóri
515 5801
Björn
Víkingur Ágústsson
sérfræðingur
515 5814
Lýður Skúli
Erlendsson
sérfræðingur
515 5810





English
