styrkir
Styrkir Tækniþróunarsjóðs
Umsóknarfrestir í Tækniþróunarsjóði eru tvisvar á ári, hinn 15. febrúar og 15. september.
Næsti umsóknarfrestur er til 15. febrúar kl 17:00.
Verkefnisstyrkir
Almennir verkefnisstyrkir eru til allt að 3ja ára og að hámarki 10 milljónir króna á ári. Krafist er 50% mótframlags umsækjenda. Þessi flokkur tekur til sín um 2/3 af ráðstöfunarfé sjóðsins, þ.m.t. nýir styrkir og framhaldstyrkir.
Frumherjastyrkir
Frumherjastyrkir eru sniðnir að þörfum sprotafyrirtækja og frumkvöðla með verkefni á byrjunarstigi. Frumherjinn er sjálfur í fyrirrúmi og hefur stofnað eða stefnir að því að stofna fyrirtæki um hugmynd sína. Gert er ráð fyrir að aðkeypt þjónusta rannsóknastofnana og háskóla sé innan við 20% af styrkupphæð. Nýnæmi er mikið en erfitt að skilgreina veltu og verðmæti að svo stöddu og rannsóknaþáttur verkefnisins er verulegur. Viðskiptaáætlun skal þó fylgja þar sem fram koma áform um veltu og innlenda verðmætasköpun.
Verkefnin eru einungis styrkt til 2ja ára að hámarki 5 milljónir hvert ár. Krafist er 25% mótframlags umsækjenda.
Brúarstyrkir; innviðir og markaðssetning
Brúarstyrkir eru sniðnir að þörfum fyrirtækja sem eru að komast á legg. Fyrirtæki geta sótt um styrk fyrir uppbygging innviða, þ.e. grunnstoða reksturs í formi hugbúnaðarkerfa og annarra þátta sem færa má rök fyrir, og sérstaks markaðsátaks sem að öllu jöfnu tengist undangenginni vöruþróun í tengslum við rannsóknar- og þróunarstarf fyrir sömu afurðir. Ekki er gert ráð fyrir fjárfestingum í einstökum tækjabúnaði, þ.m.t. tækjakaup til lögboðinnar vöktunar og grunngagnaöflunar rannsóknastofnana. Í þessum flokki verkefna er nýnæmi lágt en gera má ráð fyrir að velta og/eða verðmæti afurðar sé augljóst og tiltölulega hátt. Ítarleg viðskiptaáætlun þarf að fylgja þar sem veltutölur eru vel rökstuddar og í þjónustuverkefnum skal gera ítarlega grein fyrir þjóðhagslegri verðmætasköpun.
Brúarstyrkir eru ætlaðir fyrirtækjum sem eru með ársveltu undir 100 milljónum króna.
Verkefnin eru einungis styrkt til eins árs að hámarki 5 milljónir. Krafist er 50% mótframlags umsækjenda.
Vægi matsatriða er mismunandi eftir tegund styrks:
Fagráð metur umsóknirnar út frá nýnæmi (N), verðmætum (V), öðrum gildum (G) og líkum á árangri (L). Mismunandi vægi er á matsatriðum eftir tegund styrkja (sjá töflu að neðan). Sjá einnig nánar um reiknireglur í Leiðbeiningar Tækniþróunarsjóðs og matsblað fagráðs.
| Tegund styrks |
Vægi á nýnæmi (N) |
Vægi á verðmæti (V) |
Vægi á öðrum gildum (G) |
| Verkefnisstyrkur |
30% |
40% |
30% |
| Frumherjastyrkur |
50% |
25% |
25% |
| Brúarstyrkur |
20% |
50% |
30% |



