Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Tækniþróunarsjóður

Heilsuvefsetur og netarmur - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði

7.7.2010

Markmið verkefnisins var vaxandi umsetning í útflutningi á vörum SagaMedica - Heilsujurta.
Verkefnisstjóri var Perla björk Egilsdóttir, Sagamedica - Heilsujurtum ehf.

 

Heiti verkefnis: Heilsuvefsetur og netarmur
Verkefnisstjóri: Perla Björk Egilsdóttir, Sagamedica - Heilsujurtum ehf., perla()sagamedica.is
Tegund styrks: Brúarstyrkur
Styrkár: 2009
Fjárhæð styrks: 3 millj. kr.
Tilvísunarnúmer Rannís: RAN090303-0348

 

VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI. 

 

Heilsuvefsetur SagaMedica - Heilsujurta opnaði formlega í byrjun júní 2009. Hugmyndin var að flétta saman fræðslu um hollustu ýmissa jurta og smásölu á netinu þar sem boðnar væru íslenskar náttúruvörur beint til neytenda út um allan heim.

 

Verkefnið stóð í eitt ár en verkefnið hlaut styrk frá Tækniþróunarsjóði. Forsenda verkefnisins var uppbygging á innri starfsemi fyrirtækisins sem var að mestu fólgin í aðlögun hugbúnaðar. Leitarvélabestun og rafrænt markaðsátak var jafnframt umfangsmikill hluti verkefnisins. Unnið  var í nánu samstarfi við ráðgjafarfyrirtækið Nordic eMarketing, sem sérhæfir sig í markaðssetningu á netinu og lausnum tengdum veraldarvefnum. Í tengslum við verkefnið var ráðinn nýr starfsmaður til Sagamedica - Heilsujurta en hlutverk hans er að sinna skipulagningu, þróun, uppbyggingu og umsjón heilsuvefseturs og netarms.

 

Markmið verkefnisins var vaxandi umsetning í útflutningi á vörum SagaMedica - Heilsujurta en markaðsrannsóknir sýna að heilsuvörur eru ofarlega á lista yfir þær vörur sem neytendur kjósa að versla á veraldarvefnum. Rannsóknir sýna jafnframt að vefverslun er hratt vaxandi í heiminum en talið er að um 10% af smásöluverslun á vesturlöndum fari nú fram á vefnum. Með verkefninu var jafnframt horft til þess að markaðsaðstæður á erlendum mörkuðum hafa aldrei verið erfiðari en nú í þeim efnahagserfiðleikum sem ganga yfir heimsbyggðina. Samdráttur er í vörusölu á mörkuðum. Dreififyrirtæki og verslanir draga saman vöruúrval og barátta framleiðenda á mörkuðum harðnar. Íslensk fyrirtæki hafa hins vegar í langan tíma ekki búið við betri heimaskilyrði til útflutnings og því mikilvægt að beita nýjum markaðsaðferðum við að komast inn á hina erlendu markaði. Við þessar aðstæður er mikilvægt að allt markaðsstarf sé markvissara og beinist beint að markhópum með sem persónulegustu sambandi. Markaðssetning á netinu, ef rétt er á málum haldið, getur uppfyllt þessi skilyrði mun betur en hefðbundin markaðssetning í gegnum dreififyrirtæki og verslanir.

 

Til að efla enn frekar markaðsstarf erlendis er nú unnið að útvíkkun á netarminum með þróun á sérhæfðu endurseljendakerfi. Þegar þeirri vinnu lýkur verður unnt að tryggja sjálfvirka umbun erlendra söluaðila og stýra með skipulögðum og markvissum hætti þjálfun sölufólks á fjarlægum mörkuðum í gegnum heilsuvefsetrið.

 

Afrakstur 1:

Heilsuvefsetur og netarmur orðinn virkur. Hér er grundvallarþróun og uppsetningu vefsins lokið og netarmur orðinn opinn almennri umferð. Þessi afrakstur markar fyrsta áfanga verkefnisins.

Afrakstur 2:

Rafrænt og hefðbundið markaðsátak. Annar áfangi verkefnisins er markaðsátak sem beinist annars vegar að erlendum fréttaveitum og hins vegar að almenningi. Markmiðið er að fá umfjöllun um fyrirtækið, heilsuvefsetrið og vörur fyrirtækisins í alþjóðlegum tímaritum og auka umferð um vefinn. Afrakstur þessa áfanga má mæla með umferð um Heilsuvefsetrið og fjölda birtinga.

Afrakstur 3:

Uppbygging á aðstöðu fyrir pökkun og lager. Þetta er þriðji áfangi verkefnisins og verður unnið að honum samhliða öðrum áfanga. Við lok þessa áfanga verður til staðar grunnaðstaða fyrir starfsemina þ.e. lagerhald og pökkun.

Fréttasafn

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Tækniþróunarsjóður » Tækniþróunarsjóður fréttasíða

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta