Tækniþróunarsjóður
Vík Prjónsdóttir - vörur á Skandinavíumarkað - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði
31.5.2010
Verkefnisstjóri var Sandra Brá Jóhannsdóttir, Víkurprjóni ehf.
Heiti verkefnis: Vík Prjónsdóttir - vörur á Skandinavíumarkað
Verkefnisstjóri: Sandra Brá Jóhannsdóttir, Víkurprjóni ehf., sandra()vikurprjon.is
Styrktegund: Brúarstyrkur
Styrkár: 2009
Fjárhæð styrks: 3 millj. kr.
Tilvísunarnúmer Rannís: RAN090303-0350
VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.
Vík Prjónsdóttir kynnti nýja vörulínu á tískuvikunni í Stokkhólmi 9.-13. febrúar 2010. Hlaut vörulínan verðskuldaða athygli með gjörningi í veislu á vegum Stockholm Design District í samstarfi við leiklistarnema frá Södra Latin leiklistarskólanum í Stokkhólmi.
Sýning var opnuð 8. febrúar í versluninni Aplace í PUB verslunarmiðstöðinni sem stóð til 28. febrúar.
Vörulínan hlaut mikla umfjöllun og athygli í Stokkhólmi þar sem mikið af arkitektum og hönnuðum var samankomin alls staðar að úr heiminum.
Vík Prjónsdóttir er samstarfsverkefni fimm hönnuða og verksmiðjunnar Víkprjóns í Vík. Samstarfið hófst árið 2005 þar sem fyrsta vörulína Vík Prjónsdóttir var sett á markað. Hönnuðirnir sem standa að baki Vík Prjónsdóttur eru; Brynhildur Pálsdóttir, Egill Kalevi Karlsson, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Hrafnkell Birgisson og Þuríður Rós Sigurþórsdóttir.
Í kjölfar mikillar umfjöllunar og kynningar er verið að koma á tengslum við dreifingaraðila í Skandinavíu um sölu og dreifingu á vörulínu Vík Prjónsdóttur. Sú umfjöllun sem vörulínan fékk í tengslum við hönnunarvikuna í Stokkhólmi hefur skipt miklu máli við að koma vörunum í sölu.
Ný heimasíða http://www.vikprjonsdottir.com/ var opnuð í janúar þar sem hægt er að nálgast allar upplýsingar um Vík Prjónsdóttir en þar er einnig hægt að hala niður heildstæðum vörubæklingi.
Afrakstur:
Ný heimasíða: http://www.vikprjonsdottir.com/
Heildstæður vörubæklingur
Sýning á nýju vörulínunni í versluninni Aplace í PUB
Gjörningur í veislu á vegum Stockholm Design District
Greinar:
Blöð
Morgunblaðið 9. febrúar 2010, ,,Vík Prjónsdóttir í víking".
Morgunblaðið 20. febrúar, „Kroppateppin vekja athygli um víðan völl"
Morgunblaðið 11. mars, „Menningarverðlaun DV afhent"
Dagens Nyheter, bls. 2, sunnudagur 7. febrúar 2010
Tímarit
Zona de Obras Magazin No59°, Días Nórdicos, bls. 72
Plaza Magazine NR. 04 April 2010, bls. 177
Vefur
http://www.made-in-england.org/, 17/02/2010
http://www.goodbadgirl.se/, 08/02/2010
http://www.dezeen.com/, 23/03/2010
http://www.mocoloco.com/, 22/02/2010
http://www.ten-thirtyone.blogspot.com/, 10/02/2010
http://www.theblogismine.com/, 19/02/2010
http://www.trendhunter.com/, 17/02/2010
http://www.tjallamalla.com/, 24/02/2010
http://www.isabelle.svartvit.com/, 08/02/2010
http://www.plazamagazine.se/, 15/02/2010
http://www.coolhunting.com/, 16/02/2010
| Fréttasafn |



