Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Tækniþróunarsjóður

Tæki til mælinga á súrefni í augnbotnum - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði

25.5.2010

Mælingar á augum í sykursýki, gláku, bláæðalokanir, fyrir og eftir laseraðgerðir og glákuaðgerðir með frumgerð tækisins hafa sýnt notagildi þess.
Verkefnisstjóri var Jón Atli Benediktsson, Oxymap ehf.

 

Heiti verkefnis: Tæki til mælinga á súrefni í augnbotnum
Verkefnisstjóri: Jón Atli Benediktsson, Oxymap ehf., benedikt()hi.is
Styrktegund: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2007-2009
Fjárhæð styrks:  28,069 millj. kr.
Tilvísunarnúmer Rannís: 071250

 

VERKEFNIÐ VAR STYRKT AF TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐI.

 

Tæki hefur verið þróað, sem mælir súrefnismettun í æðum sjónhimnu með litrófsgreiningu. Þrjár frumgerðir af súrefnismælunum voru afhentar til samstarfsaðila. Bæta þurfti áreiðanleika þessara fyrstu frumgerða. Nýr súrefnismælir var því hannaður með áherslu á að bæta myndgæði og þar með auka stöðuleika mælinganna. Samningur við fjárfesta var undirritaður sem tryggði Oxymap rekstrargrundvöll til að þróa nýjan súrefnismæli í samstarfi við bandarískan framleiðanda sem er sérhæfður í optík. Þróun vélbúnaðarins er lokið og verið er að klára aðra uppfærslu á hugbúnaðinum. Niðurstöður með nýja mælinum lofa góðu. Fjöldaframleiðsla hans er hafin og hefur verið boðinn rannsóknaraðilum. Er mælir Oxymap sá fremsti sem völ er á í heiminum. Einnig var unnið af nokkrum hliðarverkefnum sem við væntum að eigi eftir að bæta búnaðinn enn frekar. Meðal annars kvörðun með gerviauga, vottun tækjabúnaðarins, samstilling myndatöku við púls, aðferðir til að meta breytingar á augnbotnamyndum yfir tíma. Send var inn einkaleyfis-forgangsréttarumsókn um aðferð til að meta breytingar á súrefnismettun yfir tíma.

 

Mælingar á augum í sykursýki, gláku, bláæðalokanir, fyrir og eftir laseraðgerðir og glákuaðgerðir með frumgerð tækisins hafa sýnt notagildi búnaðarins en frekari rannsókna er þörf áður en hægt verður að markaðsetja mælinn fyrir almennar augnlækningar.

 

Afrakstur

 

  • Afhenda þrjár frumgerðir af Retinal Oximeter sem eru samhæfðar með Canon CF-60UV augnbotnamyndavél til erlenda rannsóknahópa.
  • Viðskiptaáætlun smíðuð og fyrirtækið kynnt sem fjárfestingarkostur.
  • Samningur um fjármögnun á fyrirtækinu með aðkomu fjárfesta.
  • Niðurstöður úr tækni- og læknisfræðitilraunum með Retinal Oximeter kynntar á augnrannsóknarþingum.
  • Fyrstu niðurstöður á kvörðun á súrefnismettun útfrá blóðsýnum í glerpípu og endurbætt model auga.
  • Næsta kynslóð súrefnismælis: Endurhönnun á optík, nýr vélbúnaður (myndavélar og stýrirás)
  • Aðlögun hugbúnaðar að nýjum myndum og myndavélum lokið.
  • Prófanir á samstillingu súrefnismælings við púls.
  • Niðurstöður könnunar á einkaleyfishæfni á samstillingu súrefnismælingu við púls.
  • Niðurstöður af samanburði aðferða við tímaháða skráningu augnbotnamynda.
  • Niðurstöður aðferða sem þróaðar hafa verið um mat á breytingum augnbotnamynda.
  • Einkaleyfisumsókn "Temporal oximeter" lögð inn
  • Fjöldaframleiðsla á súrefnismæli
Fréttasafn

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Tækniþróunarsjóður » Tækniþróunarsjóður fréttasíða

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta