Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Tækniþróunarsjóður

7.7.2010

Heilsuvefsetur og netarmur - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði

Markmið verkefnisins var vaxandi umsetning í útflutningi á vörum SagaMedica - Heilsujurta.
Verkefnisstjóri var Perla björk Egilsdóttir, Sagamedica - Heilsujurtum ehf.

7.7.2010

Þangbót - lífrænar markaðsvörur úr þangi og þara - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði

Niðurstöður verkefnisins sýna að sú aðferð sem þróuð var í verkefninu nýtist vel til að framleiða lífræna bragðkjarna sem hafa þá eiginleika (bragð, lit og geymsluþol) sem leitast var eftir. Bragðkjarnarnir voru notaðir til að framleiða sósur og súpur og var gerður góður rómur að þessum vörum.
Verkefnisstjóri var Hjörleifur Einarsson, Háskólanum á Akureyri.

5.7.2010

CopyQuant-örflögur til ákvörðunar á sameinda litningagerð - verkefni lokið í Tækniþróunarsjóði

Með styrk frá Tækniþróunarsjóði Rannís hefur fyrirtækið Lífeind ehf.  unnið að þróun aðferða til að meta gæði flókinna erfðaefnissýna og þróa örsýnaraðsöfn til sértækra greininga á erfðamengi mannsins. 
Verkefnisstjóri var Jón Jóhannes Jónsson, Lífeind ehf.

2.7.2010

Erfðir ljóslotu og kynþroska í þorski - verkefni lokið í Tækniþróunarsjóði

Í þessari rannsókn var kannaður hver væri þáttur arfgerðar og tjáningar ákveðinna lykilgena í svörun við ljóslotu, ákvörðun ótímabærs kynþroska og tengsl við aukinn vöxt þorsks í eldi. Kannað var hvort, líkamsstærð, þyngd og ótímabær kynþroski væru fjölskyldulægir eiginleikar.   
Verkefnisstjóri var Guðmundur Óli Hreggviðsson, Matís ohf.

11.6.2010

Kynning á Tækniþróunarsjóði

Rannís og iðnaðarráðuneytið kynntu úthlutun Tækniþróunarsjóðs til nýsköpunarverkefna fimmtudaginn 10. júní sl. í húsakynnum Marel í Garðabæ. Að þessu sinni veitir sjóðurinn um 400 milljónum króna til nýsköpunar og þróunar í fyrirtækjum sem má teljast mikilvæg innspýting beint inn í atvinnulífið í landinu.  

9.6.2010

Úthlutun Tækniþróunarsjóðs kynnt 10. júní kl. 15-17 í Marel, Garðabæ

Rannís og iðnaðarráðuneytið kynna úthlutun Tækniþróunarsjóðs til nýsköpunarverkefna fimmtudaginn 10. júní kl. 15-17 í húsakynnum Marel í Garðabæ. Athöfnin hefst með ávarpi iðnaðarráðherra, Katrínar Júlíusdóttur og síðan kynnir Hilmar Veigar Pétursson, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs úthlutun sjóðsins. Kristinn Anderson flytur ávarp fyrir hönd Marel og nokkur sprotafyrirtæki segja frá verkefnum sínum. 

31.5.2010

Vík Prjónsdóttir - vörur á Skandinavíumarkað - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði

Vík Prjónsdóttir er samstarfsverkefni fimm hönnuða og verksmiðjunnar Víkprjóns í Vík. Samstarfið hófst árið 2005 þar sem fyrsta vörulína Vík Prjónsdóttir var sett á markað.
Verkefnisstjóri var Sandra Brá Jóhannsdóttir, Víkurprjóni ehf.

28.5.2010

Greining á ofvirkni með heilaritum

Aðferðin sem þróuð var í verkefninu getur orðið mikilvægur þáttur í hefðbundnu greiningarferli ADHD-röskunarinnar.
Verkefnisstjóri var Kristinn Johnsen, Mentis Cura ehf.

25.5.2010

Tæki til mælinga á súrefni í augnbotnum - verkefnislok í Tækniþróunarsjóði

Mælingar á augum í sykursýki, gláku, bláæðalokanir, fyrir og eftir laseraðgerðir og glákuaðgerðir með frumgerð tækisins hafa sýnt notagildi þess.
Verkefnisstjóri var Jón Atli Benediktsson, Oxymap ehf.

25.5.2010

Markaðssetning Stjóralausna í Bretlandi - verkefni lokið í Tækniþróunarsjóði

Styrkurinn var notaður til markaðsrannsókna og í tilraunaverkefni í Bretlandi sem bar góðan árangur.
Verkefnisstjóri var Gunnlaugur B. Hjartarson, ICEconsult/LHtækni ehf.

Fréttasafn

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Tækniþróunarsjóður » Tækniþróunarsjóður fréttasíða

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta