Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Skattívilnun

Skattívilnun - lög um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki 

Umsókn um staðfestingu sem nýsköpunarfyrirtæki í samræmi við  lög um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki nr. 152/2009. Fyrir liggja tvær reglugerðir sem tengjast lögunum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki:  nr. 592/2010 um meðferð og skiptingu óbeins kostnaðar við ákvörðun á skattfrádrætti vegna rannsóknar- og þróunarverkefna nýsköpunarfyrirtækja og nr. 593/2010 um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki.

Lögin og reglugerðirnar ásamt frekari upplýsingum má finna í handbók á heimasíðu Rannís.

Umsókn í vinnslu vistast þegar búið er að skrá umsjónarmann umsóknar og fyrirtæki í Kafla 1. Umsóknarfrestur er til 1. september. Hefja verður skráningu nýrrar umsóknar fyrir miðnætti 1. september, en hægt er að ljúka við umsókn til og með 20. september. Umsóknum sem er ekki lokið fyrir þann tíma eru ekki teknar gildar.

KAFLI 1 - almenn skráning. Í þessum hluta er óskað eftir almennum upplýsingum um nýsköpunarstarf fyrirtækisins. Óskað er eftir upplýsingum úr ársreikningum ásamt upplýsingum um áætlaða þróun fyrirtækisins á komandi árum. Kafla 1 verða allir að fylla út.

KAFLI 2 –  viðurkenning sem nýsköpunarfyrirtæki vegna skattfrádráttar vegna þróunarkostnaðar, sbr. 5. gr. laga nr. 152/2009. Mikilvægt er að skýrt komi fram hugmyndir að um virðisaukandi vöru/þjónustu sé að ræða og að viðskiptaáætlun sé vel skilgreind. Sýna þarf fram á að varið sé a.m.k. 5 millj. kr. til rannsókna og þróunar á rekstrarárinu og að starfsmenn hafi þjálfun, menntun eða reynslu á því sviði sem um ræðir.

KAFLI 3 – viðurkenning sem nýsköpunarfyrirtæki vegna skattafsláttar til fjárfesta sbr. 6. gr. laga nr. 152/2009. Sýna þarf fram á að rannsókna- og þróunarkostnaður samkvæmt ársreikningum undanfarin tvö af þremur árum hafi numið meira en 1,5% af rekstrartekjum eða rekstrarkostnaði eftir því hvor fjárhæðin er hærri, eða varið a.m.k. 40 millj. kr. til rannsókna og þróunar á ári undanfarin tvö ár. Gera þarf grein fyrir verkferlum og skipulagi þróunarstarfsins í starfslýsingum starfsmanna sem hafa þjálfun og reynslu og að aðstaða sé til starfsins.  Fram þarf að koma staðfesting á að hluthafafundur hafi tekið ákvörðun um aukningu hlutafjár og með hvaða hætti upplýsingagjöf til fjárfesta verður tryggð.

Skattafsláttur vegna fjárfestinga

Skattfrádráttur vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar

Hefja skráningu

                      


Starfsmenn

Sigurður Björnsson
fagstjóri
sigurdur@rannis.is

515 5801

 



Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Skattívilnun

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta