Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Nýsköpunarsjóður námsmanna

Nýsköpunarsjóður námsmanna

Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunn- og meistaranámi við háskóla til sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni. Frá stofnun 1992 hefur sjóðurinn unnið sér nafn og gott orð fyrir vinnu mörg hundruð námsmanna og verkefna sem þeir hafa leyst af hendi fyrir tilstyrk sjóðsins. Árið 2011 bárust sjóðnum rétt tæpar 500 umsóknir og voru 131 verkefni styrkt þar sem 190 nemendur lögðu til vinnu í alls 493 mannmánuði.

Árlega velur stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna um 20 verkefni sem unnin eru á árinu sem úrvalsverkefni. Af þeim eru svo 5-6 verkefni valin sem öndvegisverkefni og hljóta þau tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands. Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna byggir mat sitt á verkefnum á mati fagráða sjóðsins, sem eru fjögur: a) fagráð á sviði heilbrigðisvísinda, b) fagráð á sviði verkfræði, tæknivísinda og raunvísinda, c) fagráð á sviði náttúru- og umhverfisvísinda og d) fagráð á sviði hug- og félagsvísinda. Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna er skipuð fulltrúum frá Rannís, Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Stúdentaráði Háskóla Íslands, Samtökum iðnaðarins og Reykjavíkurborg. Verðlaunaafhending Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands nú í ár fer fram á Bessastöðum 14. Febrúar 2012.

Næsti umsóknarfrestur er til 8. mars 2012.

Upplýsingar fyrir umsækjendur er að finna undir hnappnum „Umsókn“ hér að neðan.

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands
Fréttir og tilkynningar
Lokaskýrsla

  • Rannís
  • Rannís
<