Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Markáætlun um öndvegissetur og klasa

Markáætlun á sviði vísinda og tækni 2009 til 2015

Í ályktun Vísinda- og tækniráðs frá desember 2007 er bent á svið þar sem Íslendingar hafa burði til að ná sérstökum árangri á alþjóðlegum vettvangi og þar sem starfsemi fyrirtækja, háskóla, rannsóknastofnana, opinberra aðila og einstakra þjóðfélagshópa getur fléttast saman og skilað þjóðinni enn meiri ávinningi. Nú er auglýst eftir hugmyndum að öndvegissetrum eða rannsóknaklösum á þessum sviðum.

Markmiðið er að efla vísinda- og tæknirannsóknir, hvetja til árangursríkrar samvinnu milli ólíkra aðila innanlands og í alþjóðlegu samhengi og ýta undir verðmætasköpun og fjárfestingu í rannsóknum og nýsköpun í atvinnulífinu. Rannsóknaklasinn eða öndvegissetrið á að hafa möguleika til að verða framúrskarandi í alþjóðlegu samhengi.

Vísinda- og tækniráð sér sérstök tækifæri í að:

  • efla rannsóknir á menntun og kennslu til að þróa menntakerfið svo að það standi betur undir sívaxandi kröfum um þekkingu, virkni, sköpunarkraft, frumkvæði og sveigjanleika
  • gera nýsköpunarstarfsemi að álitlegum fjárfestingarkosti og hvetja innlenda og erlenda fjárfesta og samkeppnissjóði til að veita sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum öflugan stuðning
  • efla rannsóknir á íslenskum menningararfi, handrita- og bókmenningu, tungu og samtímamenningu samhliða þeirri áherslu sem nú er lögð á útrás og alþjóðlega ímynd landsins
  • efla rannsóknir sem beinast að árangursríkum forvörnum og heilsueflingu, bættri heilsuvernd, endurhæfingu og nýjungum í heilbrigðisþjónustu, lyfjatækni og þróun matvæla
  • efla rannsóknir á auðlindum lands og sjávar og hvernig nýta megi náttúrulegar auðlindir betur með sjálfbærum hætti
  • efla rannsóknir á líklegum og afdrifaríkum breytingum lofts, láðs og lagar með öflugri þátttöku atvinnulífsins og fræðimanna úr fjölmörgum greinum
  • efla rannsóknir sem snúa að innviðum íslensks samfélags, sérstöðu þess og séreinkennum
  • efla skapandi greinar þar sem nýsköpun, öflug upplýsingatækni, menningarstarfsemi, afþreying og fjárfestar mætast og ný starfsemi vex fram

Íslensku vísinda- og tæknisamfélagi er boðið að leggja fram hugmyndir að öndvegissetrum eða rannsóknaklösum sem taka mið af þeim áherslum sem koma fram í ályktun ráðsins og vinna að  þeim tækifærum sem koma fram hér að ofan. Allt að 10 hugmyndir fá 1.000.000 kr. styrk til frekari þróunar og verður höfundum þeirra boðið að senda inn fullbúna umsókn í október 2008.

Í boði eru tveir til fjórir styrkir til rannsókna- og nýsköpunarsamstarfs frá og með árinu 2009.

Hámarksstyrkfjárhæð er 80 milljónir á ári til allt að sjö ára.

Frestur til að skila hugmyndum rennur út þriðjudaginn 13. maí klukkan 16:00.

Úthlutun kynnt í febrúar 2009.

Kynning á úthlutun í Þjóðmenningarhúsi 13. febrúar 2009 - ljósmyndir

Sjá nánar hér.

Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar fyrir þrep tvö í umsóknarferli markáætlunar 2009 - 2015.

Leiðbeiningar/guidelines office 2007  Leiðbeiningar/guidelines office 97 
Umsóknareyðublað/application form office 2007   Umsóknareyðublað/application form office 97  
Útreikningur kostnaðar/excel doc office 2007       Útreikningur kostnaðar/excel doc office 97
Matsblað/evaluation form office 2007 Matsblað/evaluation form office 97

Tíu hugmyndir sem fá styrk til að fullvinna umsóknir, sjá hér

Úrdráttur tíu hugmynda sem fá styrk til að skila fullbúnum umsóknum, sjá hér.

Hér eru glærur sem kynntar voru á fundi á Hótel Sögu 14. apríl 2008.

Reglur Rannís um vanhæfi. 

Abstract in English is here and a draft Resolution of STPC from December 2007 is here.


Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Markáætlun um öndvegissetur og klasa

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta