Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Markáætlun erfðir og örtækni

Markáætlun um erfðafræði í þágu heilbrigðis og örtækni

Markáætlunin var samþykkt á fundi Vísinda- og tækniráðs 17. desember 2004. Hún er skipulögð í tveimur lotum og nær fyrri lotan til tveggja fyrstu áranna. Seinni lotan nær til þriggja síðustu áranna. Á fyrstu tveimur árum áætlunarinnar, sem hófst í lok ársins 2005, hefur verið varið um 190 milljónum króna í rannsóknastyrki. Í seinni lotu áætlunarinnar (2007/8-2009/10) verða veittir styrkir til þriggja ára verkefna og hver styrkur verður allt að 15 milljónir króna á ári. Næstu þrjú árin mun Vísinda- og tækniráð tryggja nauðsynlega fjármuni til áætlunarinnar sem áætlað er að verði allt að 450 milljónir króna, með fyrirvara um fjárveitingar Alþingis.

Markmið
Tilgangur áætlunarinnar er að efla þverfaglegt samstarf hér á landi og auka styrk okkar á ofantöldum sviðum á alþjóðavísu. Reynt verður að hámarka nýtingu tækjabúnaðar og aðferðafræði sem fyrir er í landinu á þessum sviðum og styrkja rannsóknir og rannsóknahópa sem þegar hafa öðlast alþjóðlega viðurkenningu. Lögð er áhersla á grunnrannsóknir sem og hagnýt verkefni í nánu samstarfi fyrirtækja, rannsóknastofnana og háskóla til uppbyggingar íslensks atvinnulífs. Einnig er lögð áhersla á að tengja hin tvö svið markáætlunarinnar, annað hvort með verkefnum sem ganga þvert á bæði sviðin eða með tengslum á milli rannsóknaverkefna.

Form styrkja
Rannsóknastyrkir áætlunar geta numið frá fjórðungi til helmings af heildarkostnaði verkefnis og í sérstökum tilvikum allt að tveimur þriðju hlutum heildarkostnaðar. Styrkirnir verða verkefnisstyrkir hliðstæðir styrkjum sem veittir eru úr öðrum opinberum samkeppnissjóðum.

Þriggja manna stjórn markáætlunarinnar skipa: Rúnar Bachmann, Verkís (formaður), dr. Þorgeir Þorgeirsson, líffræðingur, Íslensk erfðagreining hf. og dr. Fjóla Jónsdóttir, dósent við Háskóla Íslands.
Rannís er falin umsjón með framkvæmd styrkveitinga í umboði stjórnarinnar.

Almennar upplýsingar á íslensku

Almennar upplýsingar á ensku

 


Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Markáætlun erfðir og örtækni

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta