Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Markáætlun öndvegis og klasar úthl 09

Markáætlun um öndvegissetur og klasa

Úthlutun 2009

Stjórn Rannsóknasjóðs hefur úthlutað styrkjum úr markáætlun Vísinda- og tækniráðs (öndvegissetur og klasar) og falið Rannís að ganga til samninga við þrjú verkefni til sjö ára (2009-2015).

Úthlutun er bundin því að mótframlag og virkt samstarf milli ólíkra aðila verði staðfest í samningi. Framhaldsstyrkir eru enn fremur háðir framvindu ásamt ítarlegu mati erlendra sérfræðinga á verkefnunum eftir 3 ár.

Á grundvelli stefnumörkunar Vísinda- og tækniráðs á haustfundi ráðsins í desember 2007 var hrint af stað nýrri markáætlun 2009-2015. Á vegum starfsnefnda ráðsins og Rannís var málið undirbúið og í apríl 2008 var auglýst eftir hugmyndum í áætlunina. Alls bárust 82 hugmyndir og fengu tíu þeirra brautargengi yfir á seinna þrep.

Við undirbúning úthlutunar fór sérskipað fagráð sérfræðinga úr fagráðum Rannsóknasjóðs og Tækniþróunarsjóðs yfir fullbúnar umsóknir með tilliti til áherslna Vísinda- og tækniráðs og markmiða áætlunarinnar. Leitað var eftir umsögnum erlendra sérfræðinga sem voru lagðar til grundvallar faglegu mati.

Með vísan til 9. gr. laga nr. 3/2003 um opinberan stuðning við vísindarannsóknir fól menntamálaráðherra stjórn Rannsóknasjóðs að úthluta úr markáætluninni. Við úthlutun miðaði stjórnin við mat hins sérskipaða fagráðs og áherslur Vísinda- og tækniráðs varðandi markáætlunina. Þar má nefna mikilvægi markáætlunar fyrir þróun þekkingar og samkeppnisstöðu Íslands og enn fremur áhersluna á alþjóðlegt samstarf, nýnæmi í rannsóknasamstarfi og nýsköpun.

Verkefnin sem hlutu stuðning eru eftirfarandi.

Verkefni   

Verkefnisstjóri  Styrkur 2009
Alþjóðlegur rannsóknarklasi í jarðhita Sigurður M. Garðarson  Allt að 70 millj. kr.
Vitvélasetur Íslands Kristinn R. Þórisson  Allt að 55 millj. kr. 
Öndvegissetur í jafnréttis- og margbreytileikarannsóknum  Irma Erlingsdóttir     Allt að 35 millj. kr. 
     

Slóð:

Forsíða » Rannís » Úthlutanir úr sjóðum » Markáætlun öndvegissetur og klasar 09

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta