Slóð:

Rannís

Rannís

Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks þekkingarsamfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu.  Rannís er náinn samstarfsaðili Vísinda- og tækniráðs og veitir faglega aðstoð við framkvæmd stefnu þess. Rannís stuðlar að þróun þekkingarsamfélagsins með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum auk þess að að greina og kynna áhrif rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningar á þjóðarhag


Rannís heyrir undir mennta- og menningarmálaráðuneytið og starfar á grundvelli laga um opinberan stuðning við vísindarannsóknir nr. 3/2003. Hér má sækja yfirlit yfir skipan yfirstjórnar vísinda- og tæknimála til glöggvunar. Forstöðumaður Rannís er Hallgrímur Jónasson.

Starfsemi Rannís skiptist í þrjú meginfagsvið - umsýslu sjóðaalþjóðastarf og menntun og menningarsvið en sameiginlegt markmið sviðanna er að efla samstarf hagsmunaaðila við undirbúning og framkvæmd opinberrar vísinda- og tæknistefnu og styðja við rannsóknir og nýsköpun, menntun, menningu og mannauð. Einnig sér Rannís um að skipuleggja mats- og greiningarstarf á áhrifum rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningar á íslenskt samfélag og þjóðarhag. Sjá skipurit Rannís hér.

Markmiðin nást því aðeins að kynningarstarf á rannsóknastarfseminni sé umfangsmikið, en Rannís leggur áherslu á öfluga heimasíðu ásamt því að annast kynningu og ráðgjöf fyrir einstaklinga, stofnanir og fyrirtæki um möguleika á styrkjum og stuðla að samvinnu innan lands og utan.

Til að styðja við kynningarstarf á rannsóknum og nýsköpun og gera áhrif vísindarannsókna sýnileg, stendur Rannís fyrir ýmsum viðburðum eins og RannsóknaþingiHaustþingi og Nýsköpunarþingi, að ógleymdri Vísindavöku og Vísindakaffi. Einnig á Rannís þátt í að hvetja vísindafólk til frekari dáða með viðurkenningum á borð við Hvatningarverðlaun  Vísinda- og tækniráðs í samvinnu við ráðið og Nýsköpunarverðlaun  í samvinnu við ÍslandsstofuNýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins.


  • Rannís