Slóð:

Greining

Greining

Mats- og greiningarsvið Rannís annast gagnaöflun, úrvinnslu, greiningu og miðlun upplýsinga um vísindarannsóknir, tækniþróun og nýsköpun.

Mats- og greiningarsvið gerir athuganir á íslenska þekkingarsamfélaginu, innviðum þess og þróun, auk þess að meta áhrif vísinda og nýsköpunar á samfélagið. Gerðar eru bæði sviðs- og svæðisbundnar athuganir sem ná til vísinda, vísindamenntunar, tækniþróunar, nýsköpunar og tengdra sviða. 

Mats- og greiningasvið tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi um umfang, stöðu og þróun vísinda, tækni og nýsköpunar auk tengdra málefna. Sem dæmi um alþjóðlegan samstarfsvettvang má nefnda OECD, Eurostat, ESB og ýmsar norrænar stofnanir.

Upplýsingar um starfsmenn mats- og greiningarsviðs má fá hér til hægri og um helstu verkefni í valblaði til vinstri.

Notkun á efni og tölum sem fram koma á síðum greiningarsviðs er öllum heimil. Við biðjum notendur þó um geta ávallt uppruna heimildar (Rannís eða aðrar stofnanir).

 

 


Starfsmenn greiningarsviðs

Einar Hreinsson
sérfræðingur

Elva Brá Aðalsteinsdóttir
sérfræðingur

Eyrún Sigurðardóttir
verkefnastjóri

Eva Dögg Diego Þorkelsdóttir
verkefnastjóri

Svandís Nína Jónsdóttir
sérfræðingur

Þorsteinn Gunnarsson
sviðsstjóri

Þorvaldur Finnbjörnsson
sérfræðingur

  • Rannís