Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Forsíðufréttir

11.6.2010

Kynning á Tækniþróunarsjóði

Rannís og iðnaðarráðuneytið kynntu úthlutun Tækniþróunarsjóðs til nýsköpunarverkefna fimmtudaginn 10. júní sl. í húsakynnum Marel í Garðabæ. Að þessu sinni veitir sjóðurinn um 400 milljónum króna til nýsköpunar og þróunar í fyrirtækjum sem má teljast mikilvæg innspýting beint inn í atvinnulífið í landinu.  

 

Umsóknir bárust um 99 verkefni að upphæð 720 milljónir og ákvað stjórn sjóðsins að veita 30 verkefnum brautargengi og nema styrkir til þeirra, auk styrkja til framhaldsverkefna, alls 400 milljónum króna. Reynt var að styðja sem flest verkefni að þessu sinni, ekki síst í ljósi stöðu þjóðarbúsins, en Tækniþróunarsjóður er eitt öflugasta stuðningstækið í umhverfi nýsköpunar og þróunar fyrir fyrirtæki á Íslandi. Tekjur Tækniþróunarsjóðs eru framlög af fjárlögum og er framlagið fyrir 2010 alls 720 milljónir. Yfirlit yfir úthlutunina hér.

Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra. Stjórnarformaður er Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP. Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum um opinberan stuðning við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins, nr. 75/2007.  Hlutverk hans er að styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Rannís hefur umsjón með starfsemi sjóðsins

Fréttasafn


Slóð:

Forsíða » Forsíða » Fréttir

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta