Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Rannsóknir og þróun, nýsköpun, tölfræði vísinda

2.9.2010

Kynningarfundur - Orkuáætlun 7.rá

Kynning á orkuáætlun 7.rá verður haldin á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 14. september kl. 9:00-11:30. Húsið opnar kl. 8:40 með morgunverði fyrir gesti fundarins.

27.8.2010

Sérfræðingur óskast til starfa á sviði nýsköpunar- og tækniþróunar

Rannís óskar eftir sérfræðingi í fullt starf á sviði nýsköpunar- og tækniþróunar. Starfið felst í þjónustu við umsækjendur og styrkþega Tækniþróunarsjóðs og nýsköpunarfyrirtækja vegna skattívilnana.

25.8.2010

Kynningarfundur – Heilbrigðisvísindi 7. rá

Kynning á heilbrigðisvísindaáætlun 7.rá verður haldin á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 2. september kl. 9:00-11:00. Húsið opnar kl. 8:40 með morgunverði fyrir gesti fundarins.

25.8.2010

Rannís og Rannsóknasjóður hljóta 110 milljóna kr. styrk frá Evrópusambandinu

Rannís og Rannsóknasjóður hafa hlotið 110 milljóna króna styrk úr Rannsóknaáætlun Evrópusambandsins. Féð verður nýtt til að fjármagna rannsóknastöðustyrki í samstarfi við stofnanir eða fyrirtæki hér á landi.

lógó  

Vísindavaka 2010

24. september kl. 17-22

 

Vísindavaka 2010 - stefnumót við vísindamenn verður haldin föstudaginn 24. september nk. í Listasafni Reykjavíkur Í Hafnarhúsinu. Rannís stendur fyrir Vísindavökunni en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu í tengslum við Dag evrópska vísindamannsins.

 

Markmiðið er að vekja áhuga almennings á vísindum og kynna fólkið á bak við þau. Þar fær fólk af öllum fræðasviðum tækifæri til að koma sér og rannsóknum sínum á framfæri á auðskiljanlegan og skemmtilegan hátt enda á Vísindavakan að höfða til alls almennings, ekki síst til fjölskyldna, barna og ungmenna.

 

Stofnunum, háskólum og fyrirtækjum býðst að taka virkan þátt í hátíðarhöldunum og sækja um að vera með sýningarbás á staðnum með fræðimenn og verkefni eða rannsókn sem áhugavert gæti verið að kynna fyrir almenningi. Vegna takmarkaðs pláss verður fjöldi sýnenda takmarkaður. Hér má sækja skráningareyðublað með ósk um þátttöku.

 

Í tilefni af fimm ára afmæli Vísindavökunnar á þessu ári verður lögð sérstök áhersla á lifandi og skemmtilegar kynningar sem  jafnvel bjóða upp á þátttöku gesta og einnig verður möguleiki á að vera með atriði á sviði til að sýna almenningi að vísindin eru lifandi og að fræðimenn rokka!


Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta