Styrkjamöguleikar fyrir Íslendinga erlendis
Velkomin á skráningarsíðu um styrkjamöguleika fyrir íslenska framhaldsnema og rannsókna- og vísindafólk erlendis
Ert þú
- á leið út í framhaldsnám?
- í framhaldsnámi erlendis?
- við rannsóknastörf erlendis?
- á leiðinni heim?
og hefur áhuga á að fá upplýsingar sendar í tölvupósti um styrkjamöguleika til framhaldsmenntunar og rannsóknarvinnu?
Markmiðið með þessari síðu er að veita íslenskum framhaldsnemendum og rannsókna- og vísindafólki við nám og störf erlendis upplýsingar um margvíslega styrkjamöguleika. Rannís hefur umsjón með innlendum sjóðum og er aðili að erlendum áætlunum sem styrkja rannsókna- og vísindafólk. Hingað til hefur verið erfitt að ná til þessara aðila til að færa þeim upplýsingar. Þess vegna hefur Rannís sett upp gagnagrunn sem íslenskir framhaldsnemendur og rannsókna- og vísindafólk getur skráð sig í. Upplýsingar úr gagnabankanum verða einnig notaðar til að vinna tölfræði um fjölda íslenska framhaldsnemenda og rannsókna- og vísindafólk.
Skráning í gagnabanka
Ef þú skráir þig í gagnabankann færðu reglulega sendan tölvupóst um nýjustu möguleika og umsóknafresti.



