Styrkir til rafrænnar stjórnsýslu
Sex íslenskir aðilar hljóta 154 milljónir til þróunar rafrænnar stjórnsýslu
Gengið hefur verið frá úthlutun sex þróunar- og rannsóknastyrkja á sviði rafrænnar stjórnsýslu, samtals um 154 m.kr.
Um er að ræða styrki úr sameiginlegum
rannsóknasjóði, Citizen-centric eGovernment Services,
á vegum Rannís, NordForsk, Vinnova í Svíþjóð og ráðuneytis
efnahags- og upplýsingamála í Eistlandi. Íslensk fyrirtæki,
stofnanir, sveitarfélag, samtök og háskólastofnun eiga aðild
styrkjunum, ásamt sænskum og eistneskum samstarfsaðilum. Nokkrir
samstarfsaðilar koma frá öðrum Norðurlöndum, en án styrkja frá
sjóðnum.
Fjölbreytt verkefni
Íslensku styrkþegarnir eru: Þjóðskrá Íslands, Strætó
bs.og íslensk íþróttasamtök, Íbúar, sem er sjálfseignastofnun í
samstarfi við Reykjavíkurborg, Mannvirkjastofnun Íslands,
Þjóðskjalasafn Íslands, Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands og
IDEGA, sem tekur þátt í tveimur verkefnum, þar af öðru í samstarfi
við Reykjavíkurborg. Átján umsóknir bárust og hlutu sex verkefni
styrk.
Markmið styrkjanna er að stuðla að þróun frumgerðar að nýrri opinberri rafrænni þjónustu eða að þjónusta sem er fyrir hendi er verði bætt verulega með þarfir borgara og samfélags í huga. Verkefnin sem fengu styrk eru fjölbreytt; þróun lýðræðishugbúnaðar, heildarkerfis fyrir aðgang borgara að rafrænni þjónustu (Citizen E-hub), þróun kerfis sem gerir aðgang almennings að þjóðskjalasöfnum (Cultural heritage) mögulegan, þróun kerfis til bilanatilkynninga og kvartana með farsíma- og tölvutækni, þróun rafrænna umsókna og úthlutana byggingaleyfa og loks birting lýðfræðilegra upplýsinga fyrir almenning á gagnvirku landakorti. Í hverju verkefni skal a.m.k. vera einn aðili frá hverju samstarfslandanna þriggja, Íslandi, Svíþjóð og Eistlandi, og einnig er í hverju verkefni a.m.k. einn fulltrúi opinberrar stjórnsýslu, einn frá rannsóknastofnun eða háskóla og einn frá fyrirtæki. Alls eru um fjörutíu samstarfsaðilar í verkefnunum sex.
Framhald styrkja frá 2010
Um er að ræða sjálfstætt framhald styrkja sjóðsins sem á
árinu 2010 veitti 50 m.kr. til fimm þróunarverkefna sömu landa; um
aðgang almennings að tölulegum upplýsingum hagstofa, að skjölum
opinberra skjalasafna, um rafræna heilbrigðisþjónustu, rafrænar
umsóknir um byggingaleyfi og heildarkerfi aðgangs borgara að
rafrænni þjónustu (Citizen E-hub). Íslensku styrkþegarnir árið 2010
voru SKÝRR, IDEGA, Hagstofan, Mannvirkjastofnun og
Þjóðskjalasafnið.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Margrét S. Björnsdóttir Háskóla
Íslands, en hún situr í stjórn verkefnisins fyrir hönd
Rannís.
Rannsókna- og þróunarstyrkir að upphæð kr. 154 MKR til
rafrænnar stjórnsýslu
Umsóknarfrestur 4. október 2011
Fyrirtæki, stofnanir ríkis og sveitarfélaga og háskóladeildir
geta nú í annað skipti sótt um rannsókna- og þróunarstyrki í þessa
áætlun sem er samstarfsverkefni RANNÍS, VINNOVA í Svíþjóð,
ráðuneyti efnahags- og upplýsingamála í Eistlandi og
NordForsk.
Markmið áætlunarinnar er að þróuð verði
frumgerð að nýrri opinberri rafrænni þjónustu, eða að þjónusta sem
er fyrir hendi er verði bætt verulega með þarfir borgara og
samfélagsins í huga. Í hverju verkefni skal
vera amk. einn aðili frá hverju samstarfslandanna
þriggja (Eistlandi, Íslandi og Svíþjóð). Eingöngu fulltrúar þessara
landa verða styrktir, en þátttakendur í verkefninu mega vera frá
öllum Evrópuríkjum. Í hverju verkefni verða einnig að
vera amk. einn fulltrúi opinberrar stjórnsýslu, einn
frá rannsóknastofnun eða háskóla og einn frá fyrirtæki.
Til úthlutunar eru 8,3 milljónir sænskra króna, að jafnvirði um
154 milljóna íslenskra króna. Reiknað er með að 4-6 verkefni hljóti
um 2 milljónir sænskra króna í styrk. Lengd verkefna getur verið
frá 12 upp í 36 mánuði.Umsóknafrestur er til 4. október
nk.
Um er að ræða framhald verkefnis sem á þessu ári styrkti fimm
baltnesk-norræn þróunarverkefni; um aðgang almennings að
tölulegum upplýsingum hagstofa, að skjölum opinberra skjalasafna,
um rafræna heilbrigðisþjónustu, rafrænar umsóknir um byggingaleyfi
og heildarkerfi aðgangs borgara að rafrænni þjónustu ( Citizen
E-hub). Íslensku styrkþegarnir voru; SKÝRR, IDEGA,
Hagstofan, Mannvirkjastofnun
og Þjóðskjalasafnið.
Áhugasömum aðilum er bent á að lesa vel texta um
tilgang, æskilegar afurðir og hvaða þættir eru
styrktir áður en umsóknarundirbúningur
hefst. Skjalið má nálgast
hér.
VINNOVA sér um umsýslu áætlunarinnar. Nánari upplýsingar
hér.
Tengiliðir sem aðstoða við að finna samstarfsaðila í
viðkomandi landi eru:
Ísland: Margrét S. Björnsdottír, University of Iceland/RANNIS
msb@hi.is Tel: + 35 45254928
Svíþjóð: Madeleine Siösteen Thiel, VINNOVA,
madeleine.siosteen-thiel@VINNOVA.se Tel: + 46 8 473
3142
Eistland: Katrin Hänni, Ministry of Economics and Communication,
Katrin.hanni@riso.ee Tel: + 37 26397604
Hjá VINNOVA eru einnig til aðstoðar:
Anna Bjurström: Anna.bjurstrom@VINNOVA.se Tel: + 46 8
4733089
Johan Lindberg: Johan.lindberg@VINNOVA.se Tel: + 46 8
473 6453
Annie Palm, administrative support: Annie.palm@VINNOVA.se
Tel: + 46 8 4733037





English
