Slóð:

Alþjóðastarf » Sóknarstyrkir

Sóknarstyrkir

Sóknarstyrkir til undirbúnings umsókna í alþjóðlega rannsóknasjóði

Stjórn Rannsóknasjóðs hefur ákveðið að leggja til árlega allt að 10 m.kr. til þess að styrkja undirbúning alþjóðlegs vísinda- og þróunarsamstarfs með íslenskri þátttöku. Forgangur er veittur umsóknum vegna undirbúnings umsókna í7. rannsóknaáætlun ESB en mögulegt er að styrkja annað samstarf samkvæmt ákvörðun stjórnar sjóðsins.

Hægt er að sækja um ferðastyrk til undirbúnings umsóknar, styrk vegna umsóknarskrifa og ráðgjafaþjónustu eða styrk vegna undirbúnings verkefna undir íslenskri verkefnastjórn.

  1. Ferðastyrkur miðast við fargjald á almennu flugfarrými auk dagpeninga samkvæmt auglýsingu fjármálaráðuneytisins á hverjum tíma. Hámarksstyrkur er 200.000 kr.
  2. Styrkur vegna umsóknarskrifa og ráðgjafaþjónustu er að hámarki 250.000 og miðast við að ráðgafi hafi verið fenginn til að skrifa umsókn eða starfsmaður stofnunar hafi eytt umtalsverðum tíma til umsóknarskrifa.
  3. Umsóknarstyrkur vegna undirbúnings verkefna með íslenskri verkefnastjórn er að hámarki 500.000 kr.

Sóknarstyrkir eru greiddir eftir að umsókn hefur verið send inn í alþjóðlegan rannsóknasjóð og alþjóðasviði Rannís hafa borist eftirfarandi gögn:

  • Staðfesting á móttöku umsóknar frá viðkomandi rannsóknasjóði
  • Afrit af umsókn til viðkomandi sjóðs (þar sem nafn umsækjenda kemur fram)
  • Staðfesting á að umsókn hafi uppfyllt formskröfur
  • Staðfesting á útlögðum ferðakostnaði

 

Vinsamlegast athugið:

Engin ein stofnun getur fengið úthlutað meira en 20% af pottinum eða 2 mkr. Tekið er tillit til stærðar Háskóla Íslands og honum er skipt niður í 5 stofnanir/svið í samræmi við sviðaskiptingu HÍ og hvert svið HÍ getur því ekki fengið meira en 20% af heildarpottinum.

Ef umsóknir fara yfir 10 mkr. þrátt fyrir niðurskurð sem byggður er á 20% reglunni þá kemur til flatur niðurskurður á allar umsóknir þar til að 10 mkr. markinu er náð.

Ef um er að ræða fleiri en einn íslenskan umsækjenda í verkefni þá skal sá aðili sem er með stærstan styrkhlut í Evrópuverkefninu af íslenskum umsækjendum sækja um sóknarstyrkinn.

Næsti umsóknarfrestur er til 15. júní 2012


Umsóknareyðublöð:

Umsóknareyðublað fyrir ferðastyrk

Umsóknareyðublað fyrir ráðgjafastyrk

Umsóknareyðublað fyrir undirbúningsstyrk fyrir 7. rá verkefni með íslenskri verkefnastjórn  

Umsóknir sendist til Elísabetar Andrésdóttur sviðsstjóra alþjóðasviðs Rannís á netfangið elisabet(hja)rannis.is.  

Alþjóðasvið Rannís veitir nánari upplýsingar.


  • Rannís