RANNÍS: NOS
NOS-nefndir og NCoE
Vísindaráðin á Norðurlöndum hafa með sér samstarf á fjórum helstu fagsviðum grunnvísinda í svokölluðum NOS-nefndum (Nordisk Samarbejdsnævn), þ.e. á sviði hugvísinda og félagsvísinda (NOS-HS), læknavísinda (NOS-M) og náttúruvísinda (NOS-N). Nefndirnar ræða stöðu og þróun vísindamála á Norðurlöndum og samstarfsmöguleika hver á sínu sviði.
NOS-HS
Norræna samstarfsnefndin í hug- og félagsvísindum ákvað árið 2004 að styrkja 4 norræn öndvegissetur í samstarfi við NORFA (nú NordForsk). Öndvegissetraáætlunin stendur yfir árin 2005 til 2010. Setrin 4 eru:
Sjá nánar á heimasíðu NOS-HS.
Fulltrúi Rannís í NOS-HS er Már Jónsson. Magnús Lyngdal Magnússon hjá Rannís er stjórnunarlegur fulltrúi í NOS-HS.
NOS-M
NOS-M veitir ekki hefðbundna styrki til vísindamanna, en stendur fyrir ráðstefnum. Ráðstefnurnar eru sérstaklega ætlaðar til að styrkja samstarf milli yngri vísindamanna og þeirra sem lengra eru komnir. Ungir vísindamenn geta sótt um þátttökustyrk til NOS-M á þessar ráðstefnur.
Undir lok ársins 2003 var að tillögu NOS-M og FPR (Forsknings Politisk Råd) samþykkt sameiginleg áætlun ráðherranefndarinnar og NOS-M um stuðning við norræn öndvegissetur (Nordic Centre of Excellence - NCoE) á sviði faraldsfræði (Molecular Medicine). Sett hefur verið á fót sérstök skrifstofa fyrir áætlunina við Sænska vísindaráðið. Norrænu rannsóknarráðin leggja saman um 50 m.kr. á ári til áætlunarinnar og Norræna ráðherranefndin um 30 m.kr. og mun áætlunin standa yfir árin 2004-2009.
Fulltrúí Rannís í NOS-M er Jóna Freysdóttir. Magnús Lyngdal Magnússon hjá Rannís er stjórnunarlegur fulltrúi í NOS-M.
NCoE á sviði faraldsfræði - Molecular Medicine.
Nordic Centre of Excellence for Research in Water Imbalance Related Disorders (WIRED). Verkefnisstjóri er prófessor Ole Petter Ottersen, Institute of basic medical sciences, Oslo University. Í þessu norræna öndvegissetri eru rannsóknahópar fra Noregi, Svíþjóð og Danmörku.
Nordic Centre of Excellence in Neurodegeneration. Verkefnisstjóri er prófessor Patrik Brundin, Wallenberg Neuroscience Centre at, Lund University. Í þessu norræna öndvegissetri eru rannsóknahópar frá Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og Noregi.
Nordic Network of Excellence in Disease Genetics (NoNEDG). Verkefnisstjóri er prófessor Leena Peltonen, Biomedicum, University of Helsinki. Í þessu norræna setri eru rannsóknahópar frá Finnlandi, Svíþjóð og Danmörku.
Eiríkur Steingrímsson prófessor situr í stjórn áætlunarinnar og Magnús Lyngdal Magnússon hjá Rannís er stjórnunarlegur fulltrúi í áætluninni. Skrifstofa áætlunarinnar er í Svíþjóð (Sænska rannsóknarráðinu). Ritari áætlunarinnar er Teresa Karlsson, Vetenskapsrådet - Medicin/Swedish Research Council – Medicin, Regeringsgatan 56, SE-103 78 Stockholm, Sími: + 46 8 546 44 286, Fax: +46 8 546 44 303, E-mail: teresa.karlsson@vr.se
NOS-N
NOS-N veitir ekki hefðbundna styrki til vísindamanna, en styrkir norrænar vísindastofnanir og fjölþjóða rannsóknaverkefni.
Undir lok ársins 2001 var að tillögu NOS-N og FPR (Forsknings Politisk Råd) samþykkt sameiginleg áætlun ráðherranefndarinnar og NOS-N um stuðning við norræn öndvegissetur (Nordic Centre of Excellence - NCoE) á sviði rannsókna á hnattrænum breytingum. Sett hefur verið á fót sérstök skrifstofa fyrir áætlunina við Finnska rannsóknaráðið (Finlands Akademi). Norrænu rannsóknarráðin leggja saman um 70 m.kr. á ári til áætlunarinnar og Norræna ráðherranefndin um 30 m.kr. og NorFA (nú NordForsk) um 17 m.kr. Mun áætlunin standa yfir árin 2003-2007.
Fulltrúi Rannís í NOS-N er Gunnlaugur Björnsson. Magnús Lyngdal Magnússon hjá Rannís er stjórnunarlegur fulltrúi í NOS-N.
NCoE á sviði hnattrænna breytinga - "Basic natural science in the field of global change in the context of ecosystem processes within climate change, atmospheric processes and oceanographic processes."
Research Unit on Bisphere - Aerosol - Cloud - Climate Interaction. Verkefnisstjóri er próf. M. Kulmala, Háskólanum í Helsinki. Í þessu norræna öndvegissetri eru rannsóknahópar frá 4 norðurlöndum, Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Þetta setur fær 35 mkr. á ári auk þess um 5 mkr. á ári frá NorFA. Heildarstyrkur er því um 40 mkr. á ári.
Nordic Centre for Studies of Ecosystem Carbon Exchange and its Interaction with the Climate System - NECC. Verkefnisstjóri er próf. A. Lindroth, Háskólanum í Lundi. Í þessu norræna öndvegissetri eru rannsóknahópar frá 4 norðurlöndum, Svíþjóð, Finnlandi, Íslandi og Danmörku. Tvær íslenskar stofnanir taka þátt í þessu setri, en það eru Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Skógrækt ríkisins á Mógilsá. Verkefnisstjóri íslenska hluta setursins er dr. Bjarni Diðrik Sigurðsson og aðrir íslenskir þátttakendur eru: m.a. dr. Hlynur Óskarsson, dr. Ólafur Arnalds, dr. Jón Guðmundsson, dr. Halldór Guðmundsson, dr. Bergþór Magnússon, dr. Ólafur K. Níelsen, dr Þröstur Eysteinsson og Ásrún Elmarsdóttir. Þetta setur fær einnig 35 mkr. á ári auk þess um 5 mkr. á ári frá NorFA. Heildarstyrkur er því um 40 mkr. á ári.
The Nordic Centre for Luminescence Research: Supporting climate change research by the provision of precise and accurate chronological control. Verkefnisstjóri er dr. A. Murrey, Háskólanum í Århus. Þetta er norrænt fysiskt öndvegissetur. Um er að ræða samstarf er á milli Háskólans í Århus og rannsóknastöðvar í Risö í Danmörku. Þetta setur fær aðeins 11 mkr. á ári.
The dynamics of ecological systems under the influence of climate variation - EcoClim. Verkefnisstjóri er próf. N. C. Stenseth, Háskólanum í Osló. Í þessu norræna öndvegissetri eru rannsóknahópar frá þremur norðurlöndum, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð. Þetta setur fær 18 mkr. á ári auk þess um 7 mkr. á ári frá NorFA. Heildarstyrkur er því um 25 mkr. á ári.
Stjórn áætlunarinnar var skipuð eftirfarandi aðilum árið 2002:
Dr. Kristjan Kristjansson, Íslandi, formaður stjórnar
Próf. Morten Pejrup, Danmörku
Próf. Lars Rahm, Svíþjóð
Próf. Terttu Vartiainen, Finnlandi
Próf. Tone Vislie, Noregi
Nánari upplýsingar hjá ritara áætlunarinnar: Janica Ylikarjula - Academy of Finland, NCoE Programme Secretary, P.O. Box 99 (Vilhonvuorenkatu 6), FIN-00501 Helsinki, Finnland, sími + 358-9-7748 8297, símbréf + 358-9-7748 8393, netfang: janica.ylikarjula@aka.fi. Heimasíða áætlunarinnar er: http://www.aka.fi/ncoe



