Euraxess starfatorgið
Á EURAXESS-starfatorginu er hægt að leita að upplýsingum um laus rannsóknarstörf og styrki. Vísindamenn geta leitað að áhugaverðum störfum en geta einnig skráð upplýsingar um sig í gagnagrunn sem fyrirtæki og stofnanir leita í. Hér er tengill í heimasíðu Evrópska rannsóknastarfatorgsins.
Rannís veitir erlendu vísindafólki sem hefur áhuga á rannsóknarstörfum og styrkjum á Íslandi fjölþætta þjónustu. Hér má finna upplýsingar um þjónustu EURAXESS á Íslandi.
Tengiliðir Rannís við EURAXESS eru Helga Rún Viktorsdóttir og Elísabet M. Andrésdóttir.









English
