EMBL
Sameindalíffræðistofnun Evrópu - EMBL
Sameindalíffræðistofnun Evrópu (European Molecular Biology Laboratory – EMBL) er í hópi bestu rannsóknastofnana í heiminum, með fyrsta flokks aðstöðu til grunnrannsókna og þjálfunar í sameindalíffræði og skyldum greinum. Nítján lönd eiga aðild að stofnuninni, þ.m.t. Ísland, og starfa um 1400 manns hjá henni frá um 60 þjóðum.
Aðalstöðvar EMBL eru í Heidelberg í Þýskalandi en einnig eru útstöðvar í Hamborg (Þýskalandi), Hinxton (Bretlandi), Grenoble (Frakklandi) og Monterotondo (Ítalíu). Samskipti innan EMBL eru á ensku.
Innan EMBL eru nokkrar rannsóknadeildir og má fá nánari upplýsingar um þær hér.
EMBL hefur upp á mikla möguleika að bjóða fyrir rannsóknafólk á uppleið. Meðal annarra er boðið upp á skammtímaverkefni (t.d. sérverkefni í grunnnámi), doktorsnám, nýdoktorastöður (postdoc), hópstjórastöður sem og frábæra aðstöðu fyrir rannsóknafólk sem kemur til skemmri tíma í heimsóknir.
Reglulega eru auglýst störf í boði hjá EMBL. Störfin eru oftast rannsóknatengd en einnig er um að ræða störf í stoðdeildum stofnunarinnar. Smelltu hér til að skoða störf í boði.
Allar nánari upplýsingar má fá á heimasíðu EMBL og hjá Katrínu Valgeirsdóttur, Rannís, katrin@rannis.is



