COST rannsóknasamstarf
COST
COST (European Cooperation in the field of Scientific and Technical Research) er almennur rammi um samstarf á sviði vísinda- og tæknirannsókna.
COST- netverkefni ("COST Actions") eru fyrst og fremst til að auðvelda evrópskum vísindastofnunum að byggja upp samstarfsnet á ákveðnum rannsóknarsviðum. Þátttakendur í COST-netverkum skiptast á reynslu og niðurstöðum með skipulegum hætti (fundir, ráðstefnur o.fl.) og stuðla þannig að betri árangri á viðkomandi sviði.
Nú eru 34 þjóðríki aðilar að COST- samstarfsvettvanginum: Austurríki, Belgía, Bretland, Búlgaría, Króatía, Kýpur, Tékkland, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, FYROM-Makedónía, Þýskaland, Grikkland, Ungverjaland, Ísland, Írland, Ítalía, Lettland, Litháen, Luxembúrg, Malta, Holland, Noregur, Pólland, Portúgal, Rúmenia, Serbía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Sviss og Tyrkland. Að auki er Ísrael samstarfsland með full réttindi nema atkvæðisrétt í stjórnarnefnd, CSO og sviðsnefndum, DC. COST-samstarfið var formlega sett á fót af 19 löndum árið 1971.
Ísland hefur verið aðili að samstarfinu síðan 1991. Fulltrúar Íslands eru Ásgerður Kjartansdóttir, vísindafulltrúi, sendirráði Íslands í Brussel og Katrín Valgeirsdóttir hjá Rannís sem einnig er landsfulltrúi (COST National Contact).
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu COST http://www.cost.esf.org/ og einnig er hægt að hafa samband við Katrínu Valgeirsdóttur hjá Rannís, katrin@rannis.is





English
