Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

VÍSINDAVAKA - stefnumót við vísindamenn

Vísindavaka er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra. Öll fjölskyldan finnur eitthvað við sitt hæfi á Vísindavöku, en hún er haldin samtímis um alla Evrópu á Degi evrópska vísindamannsins, sem er síðasta föstudag í september. Rannís stendur fyrir Vísindavöku á Íslandi.

 

Vísindavaka 2012 verður haldin föstudaginn 28. september í Háskólabíói. Vísindavakan verður sett kl. 17:00 og henni lýkur kl. 22:00.

 

Þeir sem hafa áhuga á að vera sýnendur á Vísindavöku geta nálgast upplýsingar og skráningareyðublað í þessum tengli.

 

Í aðdraganda Vísindavöku 2012 verður hellt upp á nokkur Vísindakaffi. Þar kynna fræðimenn viðfangsefni sín fyrir almenningi, og gefst fólki kostur á að spyrja þá spjörunum úr. Vísindakaffikvöldin eru óformleg og skemmtileg skoðanaskipti milli fræðimanna og gesta. Nánari upplýsingar þegar nær dregur.

 

Nánari upplýsingar um einstaka dagskrárliði Vísindavöku koma undir valblað hér til vinstri eftir því sem dagskrá þróast, en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu RANNÍS í síma 515 5800 eða Aðalheiði Jónsdóttur kynningarstjóra Rannís í netfangi alla@rannis.is

Fréttir

3.10.2012

Háskólalestin hlýtur viðurkenningu fyrir vísindamiðlun

Viðurkenning Rannís fyrir vísindamiðlun var afhent á Vísindavöku 2012. Að þessu sinni hlaut Háskólalestin viðurkenninguna.

28.9.2012

Til hamingju með daginn, vísindamenn!

Vísindavaka Rannís er haldin í dag, 28. september kl. 17-22 í Háskólabíói.

27.9.2012

Vísindakaffi í kvöld: Skiptir náttúrufegurð einhverju máli?

Guðbjörg Rannveig Jóhannesdóttir, doktorsnemi í heimspeki við Háskóla Íslands verður með okkur í síðasta vísindakaffinu að þessu sinni, á Súfistanum Máli og menningu á Laugavegi í kvöld kl. 20.00-21:30. Allir velkomnir í létta vísindakaffistemmningu á meðan húsrúm leyfir!

26.9.2012

Vísindakaffi kvöldsins: Eru jöklarnir að bráðna?

Þorsteinn Þorsteinsson jöklafræðingur hjá Veðurstofu Íslands verður með okkur í þriðja vísindakaffinu á Súfistanum Máli og menningu á Laugavegi í kvöld kl. 20.00-21:30. Allir velkomnir í létta vísindakaffistemmningu á meðan húsrúm leyfir!


Vísindavaka

VÍSINDAVAKA 2012

föstudaginn 28. september kl. 17:00-22:00
Í Háskólabíói

 

Umsjón með Vísindavöku:

Aðalheiður Jónsdóttir hjá Rannís, sími 515 5800, netfang alla@rannis.is

 


Stjórnborð

Heim Prenta síðu
Vísindavaka